Valdefldu teymið þitt á 4 vikum
Á þessu netnámskeiði færðu skref fyrir skref leiðbeiningar um hvernig þú styrkir teymið þitt til að afkasta meiru og hafa gaman að því.
Þú munt læra hvernig þú forgangsraðar verkefnum og virkjar teymið þitt til að vinna að þeim verkefnum sem skipta mestu máli.
Þú munt læra hvernig þú færð teymið þitt og einstaklingana innan þess til að axla meiri ábyrgð og vinna sjálfstætt.
Þú munt læra hvernig þú finnur takt með teyminu þínu sem hjálpar þeim að vera afkastameiri.
Eftir að þú hefur fundið takt með teyminu þínu muntu læra hvernig á að leiðbeina því og hvetja það til að ná markmiðum sínum.
Þetta námskeið er fyrir kvenstjórnendur hjá fyrirtækjum og stofnunum sem langar að afhenda ábyrgð betur til teymisins síns og langar til að hafa meiri tíma til að hugsa, en ekki bara slökkva elda.
Athugið að þetta fjögurra vikna námskeið sem hefst 20. febrúar og lýkur 19. mars 2023.
Um er að ræða ókeypis tilraunaútgáfu af þessu nýja netnámskeiði. Taktu þátt og deildu þessu með þeim sem þú telur að gæti haft áhuga.